The truth is out there but I forgot the URL...
föstudagur, ágúst 15, 2008
Farin til Svíþjóðar... í fyrsta skiptið síðan '99. Verður eflaust skemmtileg upplifun :) Ólöf, Ragnar, Íris og Steini koma með mér til skemmtunar og fararstjórnar (*hóst Ólöf...). Þar sem fararstjórinn okkar er einstaklega fær í sínu starfi er búið að bumpa miðunum okkar út upp í Saga Class ;-)

Planið eins og það leit út seinast þegar ég tékkaði:


Föstudagur (í dag)

Keflavíkurflugvöllur tékk in 13:48.

Fríhöfn 14:17.

Flugvélin 16:32.

Í lofið 16:58.

Arlanda ca: 19:26.


Laugardagur

Gröna Lund 12:02 (opnar 12).
Heim að sofa 23:16.


Sunnudagur

Frjáls tími 9-12.

Skoðunarferð um Täby 12:00 - 18.

Matur hjá Iko frænda 19 - 23.


Mánudagur

Verslunardagurinn mikli !! Er ekki alveg klár á tímaplaninu sem búið var til fyrir mánudag...
Á þriðjudag fljúgum við svo aftur heim, þannig að sá dagur fer bara í ferðalag.
Duglegi sambýlismaðurinn minn verður heima um helgina (þar sem hann komst ekki með okkur vegna vinnu) að veggfóðra með veggfóðrinu sem við keyptum í gær !! Verður eflaust orðin allger snilld heima á þriðjudag þegar ég kem aftur á klakann.
mánudagur, ágúst 11, 2008
Elísabet Von Erlingsdóttir
Ástrós og Elli skírðu litlu prinsessuna sína í dag, henni var gefið nafnið Elísabet Von Erlingsdóttir. Skírning var í fríkirkjunni í Hafnafirði og skírnarveislan í Haukaheimilinu á völlunum. Til hamingju með litlu prinsessuna ;-)
fimmtudagur, júní 19, 2008
Sól og sumar merkir að sjálfsögði að ég hangi veik heima hjá mér... við Gabríel erum í stíl í dag og þar af leiðandi bæði heima. Ég byrjaði á því að vakna stífluð í gegn og með beinverki á mánudag, ég var svo orðin hress á 17.júní og fór með Gabríel í heimsókn til Ólafar frænku en í portinu þar var alveg bongóblíða (eins og reyndar flesta daga þegar sólin sést). Vorum þar megnið af deginum í góðu yfirlæti. Svo á leiðnni heim tekur Gabríel Frosti uppá því að fá ælupest... ég tók sénsinn í gær og sendi hann á leikskólann og fór sjálf hálf slöpp í vinnuna. Mistök !! Gabríel byrjaði nefnilega aftur að æla í gær þegar við komum heim. Í dag er ég svo ónýtari en nokkru sinni fyrr af kvefi en Gabríel alveg þokkalega hress hérna heima... þorði samt ekki að taka sénsinn á því að fara með hann á leikskólann og láta hann smita alla deildina af ælupest.

Ekki samt reyna að hringja í mig í dag þar sem nýji 48.000 kr. síminn sem ég keypti í desember er bilaður!! Hann byrjaði á því að það var ekki hægt að fara í símaskránna og ýta á þann sem ég hafði hugsað mér að hringja í heldur varð ég að leggja númerið á minnið og pikka það inn og ýta svo á hringja. Og svo á 17.júní bilaði einnig hljóðneminn á símanum þannig að það heyrist ekkert í mér... hringdi hálf pissed í Nova í gær til að athuga með ábyrgðina á símanum, lennti á stelpu sem var nýlega búin að fá sér skammt af grænu gleðipillunum sínum og nánast söng að ég ætti bara að koma með símann og þau myndu gera við hann og þar að auki lána mér síma á meðan... snilld... eða væri það ef ég sæji fram á að komast með hann í viðgerð á næstu dögum.

Ástrós og Elli eru komin með babyland síðu fyrir litlu prinsessuna sína, linkinn að síðunni má finna hérna hægra megin. Tók samt út 2 myndir af litla krúttinu og ætla að birta þær hérna í leyfisleysi...


Efri mynd: Alexander Jóhann, móðurbróðir og litla skvísa.
Neðri mynd: Litla skvísan á leiðinni heim af spítalanum.



Ólöf og Stígur eru búin að vera að massa Óðinsgötuna upp og breyta hluta af henni í gistihús. Linkinn á gistiheimilið ( Draupnir Guesthouse ) má einnig finna hérna hægra megin á síðunni. Mjög flott breyting á húsinu og fyrstu gestir eru að koma til þeirra um helgina :-)
miðvikudagur, maí 28, 2008
Ég er orðin móðursystir !! :-)
Kominn tími til að koma úr bloggverkfalli til að tilkynna það að Ástrós og Elli eru (loksins) búin að eiga... og þau áttu litla gullfallega stelpu s.l. fimmtudag s.s. 22. maí. 14 merkur og 50 sm (ef mig minnir rétt)...
Þann dag á Bergný líka afmæli þannig að þetta er núna helmingi merkilegri dagur ;-)



Gleðilegan miðvikudag ;-)
sunnudagur, apríl 13, 2008
Ýmindið ykkur lagið "I like to move it" og bætið svo þessum texta við: "júlli kóngur er mættu á svæðið og hann fílar stelpur sem fíla að dilla sér... "
Og hvaða BARNAmynd erum við þá komin með ?
þriðjudagur, apríl 01, 2008
Ég er flutt !!
Þetta hafðist fyrir rest og núna getið þið fundið mig á Fjörubraut 1231 (efast um að það segi einhverjum mikið samt). Fyrsti dagurinn hérna byrjaði samt ekkert allt of vel þar sem ég af sjálfsögðu svaf yfir mig, eins og alla daga þessa dagana. Í gærkvöldi vorum við Bergný svo í kaffi úti á svölum þegar ég rak sígarettuna mína í hliðið á svölunum og glóðin skaust af og festist (ekki grín) á puttanum á mér, og núna er ég því með blöðru á stærð við bónusgrísinn á hægri vísifingri. Í morgun var ég vakin um 11 þegar Bergný var að fara á fætur... Við fórum svo út úr húsi á sama tíma og brunuðum á litlu bílunum okkar út á Reykjanesbraut, Bergný raser var rétt á undan mér þegar ég keyrði aðeins of mikið út í kant og smallaði dekkinu á bílnum mínum !! Hringdi í Bergný og skipaði henni fallega að snúa við og kippa mér með, þannig að bílinn var skilinn eftir úti í kanti á Reykjanesbraut í dag. Var heldur betur fegin áðan þegar við keyrðum framhjá honum og ég sá að hann var heill á húfi... litla greyjið. Plataði svo Kjartan með mér að skipta um dekk á honum áðan, þannig að hann er núna á 3 nagladekkjum og einu sumardekki á öðruvísi felgu... ekki sætt :-(
Ég er reyndar mjög fegin því að hafa sloppið við 1.apríl brandarana þetta árið... það hefði alveg gert útaf við byrjunina þessari viku.

Alveg greinilega ekki vikan mín...
miðvikudagur, mars 26, 2008
Mars = veikindi og afmæli...
Ég skal segja ykkur sögu af 2 ára barni í dag... í tilefni þess að ég er heima hjá mér að kafna úr kvefi og drepast úr leiðindum. Get ekki beðið eftir að komast í vinnuna á morgun, ef kvefið ákveður að láta undan sólhattinum (sem ég er búin að þamba í tonnavís) !!
Þetta 2 ára barn er að sjálfsögðu einstakt í alla staði, en það sem er áhugavert við seinustu daga er uppáhaldsmyndin sem það hefur valið sér og horfir á 5 sinnum á dag (á ensku, frönsku, spænsku til skiptis)... og sú mynd er "Confessions of a Teenage Drama Queen" með Lindsay Lohan, ég minnist þess samt ekki að hafa átt þessa mynd til og er ekki alveg að kveikja hvar barnið gæti hafa náð sér í þessa mynd.
Veika mamman var svo að skuttla Gabríel í vinnuna í morgun þegar kviknaði á laginu úr myndinni (reyndar á disk sem ég skrifaði fyrir hann *roðn) og segir ekki kríli:"stelpurnar í bílnum" (þetta eru nebbla stelpurnar hans núns)... og ég:"jújú"*púst. Fer þá ekki litli ormurinn að dilla sér á fullu afturí og reyna að raula með laginu. Klessti næstum því á ljósastaur hann var svo krúttlegur þarna afturí!!

Hún yndislega systir mín á svo ammæli í dag, heil 22 ár síðan skrattakollurinn fæddist!! Til hamingju með það elskan ;-)


GI Jane... lengst til vinstri ;-)

Svo átti "litli" sæti bróðir átvr ammæli 20.mars... Til hamingju með það sæti!!




Sorry... átti ekki sætari mynd af honum ;-)

Svo á hún Ásta mín afmæli 30.mars og ég ætla að nota tækifærið fyrst ég er byrjuð að óska henni til hamingjum með afmæli... fékk nett panik rétt í þessu og var alveg viss um að ég hefði sofið af mér afmælispartyið!!

Og svo að sjálfsögðu á mamma ammæli núna 31.mars... Til hamingju með það!!

Ég skal næstum veðja að ég er að gleyma einhverjum sem á afmæli í mars... þar sem mjööög margir sem ég þekki virðast eiga afmæli akkúrat þennan mánuðinn!!